» » Various - Tún: Tónleikaupptökur Úr Norðurkjallara
Various - Tún: Tónleikaupptökur Úr Norðurkjallara

Various - Tún: Tónleikaupptökur Úr Norðurkjallara

Musician: Various
Album title: Tún: Tónleikaupptökur Úr Norðurkjallara
Style: Indie Rock, Electro, Drum n Bass
Released: 1997
Country: Iceland
Size MP3 version: 1820 mb
Size APE version: 1726 mb
Size WMA version: 1114 mb
Rating ✫: 4.7
Votes: 871
Format: AC3 AU WMA XM WAV MP2 DMF
Genre: Electronic / Rock

Various - Tún: Tónleikaupptökur Úr Norðurkjallara


Tracklist

1 Egill Skúlason Kennaraþrýstingur
2 Electrique Junior
3 Maus Síðasta Ástin Fyrir Pólskipti
4 Hugh Jazz Anatomy Of Strings
5 Fítónn Jóðsjúkra Kvenna Lífsóður Tjokkós
6 Stjörnukisi Leifturljós
7 Andhéri Aleinn Með Bjúgu
8 Versa Ver
9 Müller Holdrisinn
10 Gulla Vala & Tillarnir Kyssukisa
11 Glimmerbomban Bonní Sinalco
12 Mikey Soul Saver
13 Self Realization In The Experience Of Sentual Love Hamingjan Kemur Í Litlum Skömmtum
14 Hamskiptin Hlaupsöguð Haglabyssa

Notes

Jóðsýki og haglabyssa TÓNLIST Geisladiskur TÚN ­ TÓNLEIKAUPPTÖKUR ÚR NORÐURKJALLARA Safnplata tekin upp í Norðurkjallara Menntaskólans við Hamrahlíð, á tónleikum ýmissa listamanna. Flytjendur: Egill Skúlason, Electrique, Maus, Hugh Jazz, Fítónn jóðsjúkra kvenna, Stjörnukisi, Andhéri, Versa, M¨uller, Gulla Vala & tillarnir, Glimmerbomban Bonní, Mikey, Self Realization in the Experience of Sensual Love og Hamskiptin. Lagahöfundar eru listamennirnir sjálfir. Hljóð í sal: Jón Skuggi. Upptökur: Guðmundur G. Finnsson. Túngarður 64 mín.

SEINT verður hægt að koma á geislaplötu upplifuninni að vera staddur á tónleikum. Látbragðið kemst ekki til skila og stundum ekki húmorinn; galdur augnabliksins og samhengi. Þess vegna er erfitt að dæma tónleikaplötur.

Geisladiskurinn Tún hefst á laginu Kennaraþrýstingur eftir Egil Skúlason sem syngur það og spilar á kassagítar. Lagið er afar slakt og söngurinn sömuleiðis, sem væri kannski afsakanlegt ef textinn væri jafnsniðugur og hann á að vera. Yrkisefnið er ekki þess eðlis að hægt sé að fjalla um það hér og að mínu mati gersamlega mislukkaður brandari.

Annað lag disksins heitir Junior og er með hljómsveitinni Electrique. Það er ágætis "ambient"­danslag, "grúvar" vel og er skemmtilega "mónótónískt".

Þriðja lagið, Síðasta ástin fyrir pólskiptin með hljómsveitinni Maus, er langbesta lag plötunnar. Lagið er "melódískt", rokkað að sjálfsögðu og það verður óhemju spennandi að fylgjast með þróuninni hjá sveitinni á væntanlegri plötu. Ef hún verður í þessum dúr kemur varla út betri plata á Íslandi þetta árið.

Hugh Jazz rær á svipuð mið og Electrique með laginu "Anatomy of Strings", en takturinn er þó hraðari. Ágætt lag.

Næstur er Fítónn jóðsjúkra kvenna á ferðinni, með lagið Lífsóð tjokkós. Það er ófrumlegt með eindæmum og sumir kynnu að halda að þar væri dúettinn Súkkatt mættur. Á upptökunni má heyra að áheyrendum fellur ljóðið vel í geð og þess vegna læðist sú hugsun að undirrituðum að hann sé firrtur allri kímnigáfu. Alltént stökk honum ekki bros þegar hann heyrði lagið fyrst og við endurtekna hlustun verður það stórum leiðinlegra.

Framlag Stjörnukisa er lagið Leifturljós. Það er einna best flutta lagið á plötunni, ágæt blanda dans­ og rokktónlistar. Það er afar vel flutt, rafrænn trommutakturinn heldur því vel saman. Með bestu lögum plötunnar.

Andhéri er í hörkuformi með lagið Aleinn með bjúgu. Söngurinn er sjarmerandi lélegur og lagið venst vel.

Lagið Ver með hljómsveitinni Versa stingur nokkuð í stúf og brýtur plötuna skemmtilega upp. Eftir því sem undirrituðum heyrist er hljóðfæraskipanin svona: þverflauta, fiðla, víóla eða selló og slagverk. Mjög skemmtileg klassísk tónsmíð.

M¨uller á lagið Holdrisinn. Einna helst má finna að því að bassaleikurinn er óstyrkur. Lagið er hins vegar prýðisgott.

Gulla Vala og tillarnir bjóða hlustendum upp á Kyssukisu, sem er einstaklega óaðlaðandi lag og þrátt fyrir síendurtekna hlustun nær það ekki hylli þess sem þetta skrifar. Það virkar sem hálfgert "djamm", með saxófón, gítar og bassa. Gulla Vala hvæsir og klórar og raular þess á milli skerandi og fráhrindandi röddu.

Lagið Sinalco með Glimmerbombunni Bonní státar af saxófóni eins og svo mörg önnur lög á þessari plötu. Það hefst á "fönk-djammi" þar sem söngvarinn talar um ást sína á þessum drykk sem horfinn er af markaðnum. Síðan brestur á leiðinlegt og ófrumlegt viðlag. En tónlistin á sennilega ekki að skipta neinu máli, þjónar líklega þeim tilgangi einum að koma "sniðugum" textanum á framfæri.

Mikey með Soul Saver er skemmtilega kraftmikill seiður, en söngurinn skemmir fyrir. Liðsmenn hefðu mátt vanda sig betur við smíðina, finna betri laglínu fyrir söngvarann. Engu að síður er þetta mjög áheyrilegt lag.

Eftir þrjú rokklög í röð er aftur komið að "ambient"-danstónlistinni. Þar fer hljómsveitin Self Realization in the Experience of Sensual Love. Tilvalið til að hlusta á fyrir svefninn. Seiður af annarri tegund en Mikey og ekki síður góður.

Síðasta orðið eiga Hamskiptin með lagið Hlaupsöguð haglabyssa. Lagið er tvískipt, í fyrri hlutanum er rödd söngvarans bjöguð, minnir á upptöku með ræðu Hitlers. Um miðbik lagsins er skipt um gír, harmoníkan tekur við og söngvarinn verður mjúkradda. Hann talar við félaga sína í sveitinni og útkoman er skemmtileg.

Að síðustu ber að lofa þetta framtak útgáfuhópsins Túngarðs, því í Norðurkjallaranum er mikil gróska í tónleikahaldi. Ef til vill hefði þó mátt vanda efnisvalið betur.

Ívar Páll Jónsson

Barcode and Other Identifiers

  • Barcode: none

Link: